Byggðasafn Árnesinga

Fréttir

Garðálfar frá Laugarvatni í Húsinu á Eyrarbakka

Páska- og vorsýning safnsins er ljósmyndasýningin „Ef garðálfar gætu talað“ en þar gefst gestum tækifæri til að horfa inn í veröld þeirra sem byggðu sér sælureit í hjólhýsabyggð á Laugarvatni.

Sýningar og viðburðir

Á sýningunni Drengurinn, fjöllin og Húsið er fjallað um æsku og unglingsár Ásgríms Jónssonar listmálara. Ásgrímur var fæddur og uppalinn í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa.

Leikur að læra

Heimsókn á safnið getur sannarlega verið skemmtileg og spennandi afþreying fyrir alla fjölskylduna! Þar er ótal margt forvitnilegt að sjá, skoða og upplifa.

Fróðleikur

Ásgrímsleiðin er tillaga að ökuferð um Flóann á söguslóðir Ásgríms Jónssonar listmálara með viðkomu á sýningum Listasafns Árnesinga og Byggðasafns Árnesinga og byrjað eða endað er í Listasafni Íslands – í húsi Ásgríms. 

Húsið

Húsið er heillandi og sögufrægt kaupmannsheimili þar sem sögð er meira en 250 ára gömul saga verslunar og menningar.  Húsið var byggt 1765 og var mikið menningarsetur,  þangað bárust fjölbreyttir straumar og stefnur í listum og menningu.

Sjóminjasafnið

Áraskipið Farsæll sem var á ögurstundu bjargað frá því að hverfa í sandinn prýðir í dag salarkynni Sjóminjasafnsins. Sýningin þar hverfist um sjómennsku og mannlíf við Suðurströndina á öldum áður þegar róið var daglega á opnum bátum út á haf til fiskveiða. 

Kirkjubær

Fólk streymdi úr sveit í þorp í hvirfilbyli breytinga á millistríðsárunum og reisti sér hús í líkingu við Kirkjubæ á Eyrarbakka. Blómaskeið kaupmanna í Húsinu var að líða undir lok en rafljós, gúmmístígvél og útvarp voru byltingar samtímans.

Útihús og Eggjaskúr

Útihúsin og Eggjaskúrinn minna á hve stórt heimilishaldið var í Húsinu áður fyrr.  Húsbóndinn grúskaði í fuglum og reykti pípu í skúrnum meðan kindur jörmuðu í fjárhúsinu og mjaltakonan mjólkaði kýrnar í fyrsta steypta fjósi á Suðurlandi.

Beitingaskúrinn

Falin safnabygging á Eyrarbakka er Beitningaskúrinn í miðju þorpinu þétt við sjóvarnargarðinn. Þar hefur tíminn staðið í stað, beitningarbalar, veiðarfæri og ilmur hafsins mæta gestum.  Skúrinn var byggður árið 1925 á blómaskeiði vélbátaútgerðar á Eyrarbakka.

Þuríðarbúð

Þuríðarbúð er sjóbúð sem gefur innsýn í aðstæður sjómanna á áraskipum á 19. öld. Sjóbúðin kúrir inni í miðri íbúðabyggð á Stokkseyri og er ætíð opin. Hún er hlaðin úr torfi og grjóti og bjálkar meðfram veggjum þar sem sjómenn gátu sofið tveir og tveir saman. Sjóbúð var allt í senn; svefnskáli, matstofa og dagstofa vermanna.

Rjómabúið

Rjómabúið á Baugsstöðum er sannkölluð perla meðal safna á Íslandi og er eina rjómabú landsins sem stendur eftir með öllum búnaði. Lækurinn er stíflaður þegar gestir heimsækja búið og rjómastrokkurinn og hnoðborðið marra í gang þegar vatnsaflið knýr tækin áfram.

Hér og þar

Sögulega gripi Árnessýslu má sjá á 17 stöðum um allt Suðurland þótt höfuðstöðvarnar séu staðsettar á Eyrarbakka.