Á því herrans ári
Á því herrans ári
Mánudaginn 1. maí 2017 opnar ný sýning í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Hún nefnist Á því herrans ári. Á sýningunni er varpað ljósi á myntsafn Helga Ívarssonar frá Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009) en hann var myntsafnari mikill og arfleiddi Héraðsskjalasafn Árnesinga að myntsafni sínu að sér gengnum. Er myntsafn Helga fágætt að gæðum. Til sýnis eru ýmsar myntir og ljósi varpað á söguna þegar myntin var slegin.
Á því herrans ári er samstarfsverkefni Héraðsskjalasafns Árnesinga og Byggðasafns Árnesinga. Sýningin opnar kl 16 þann 1. maí og stendur til 28. maí. Opnunartími safnanna á Eyrarbakka er alla daga 1. maí til 30. september kl. 11-18.