Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 2014
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 2014
JÓNSMESSUHÁTÍÐ Á EYRARBAKKA 21. JÚNÍ 2014
09:00 Fánar dregnir að húni við upphaf 15. Jónsmessuhátíðarinnar á Bakkanum
Eyrbekkingar flagga íslenska fánanum eða Bakkafánanum og ganga frá skreytingum í hverfalitunum.
10:30-17:00 Laugabúð í Sjónarhóli
Alltaf eitthvað spennandi að gerast í Laugabúð og nú verða gestakaupmenn úr höfuðstaðnum við afgreiðslustörf en Kaupmaðurinn sjálfur segir sögur af húsi og íbúum. Bókadeildin verður opin í kjallaranum og þar verður fullt af bókaormum með gamlar og yngri bækur.
11:00-18:00 Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka
Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Fjölbreyttar sýningar og sagan við hvert fótmál. Alltaf heitt á könnunni. Í borðstofu er sýningin Ljósan á Bakkanum – um ævi og störf Þórdísar Símonardóttur ljósmóður á Eyrarbakka 1883-1926. Í Assistentahúsinu er sýning helguð Árna Magnússyni (1663-1730) handritasafnara og til sýnis skinnhandrit. Í forsal Sjóminjasafnsins rúlla gamlar bátamyndir á skjá. Þar hefur nýlega verið sett upp sýningin Blátt eins og hafið.
Ókeypis aðgangur á hátíðinni.
11:00 Unga kynslóðin skemmtir sér
Hinn sívinsæli Brúðubíll kemur í heimsókn að Sjóminjasafninu. Og nú er aldeilis ys og þys í Brúðubílnum – söngur, sögur og leikrit. Hoppukastali og fl. Andlitsmálun hefst kl. 10:30.
11:30-22:00 Rauða húsið á Eyrarbakka
Þriggja rétta Jónsmessutilboð allan daginn – humarsúpa í forrétt, kjúklingabringa eða fiskitvenna í aðalrétt og Þjórsárhraunið sívinsæla í eftirrétt. Kr. 5.000.
12:00-14:00 Heimboð í Garðshorn
Elínbjörg Ingólfsdóttir og Vigfús Markússon bjóða í Jónsmessusúpu og kl. 12:30 má búast við óvæntri uppákomu. Þetta verður sko spennandi.
13:00-18:00 Listmálarinn á Litlu-Háeyri
Listmálarinn Hallur Karl Hinriksson á Litlu-Háeyri opnar vinnustofu sína gestum og gangandi.
Allir hjartanlega velkomnir! Sjá nánar á www.facebook.com/hallurkarl.
13:30-15:00 Við Bakaríið
Margrét og Sverrir í Bakaríinu bjóða gestum og gangandi að koma og skoða lóðarframkvæmdir sem þau hafa staðið fyrir í vor og sumar.
14:00-17:00 Kirkjubær og Beitningaskúrinn
Nýuppgert alþýðuheimili í Kirkjubæ og Beitningaskúrinn í Byrgjunum verða til sýnis og öllum opin.
14:00-18:00 Handverksmarkaður á Stað
Í samkomuhúsinu Stað verður menningarmarkaður með margs konar handverki og hvers konar alþýðuafurðum. Og standandi vöflukaffi allan daginn. Upplýsingamiðstöðin opin frá kl. 9:00-20:00.
14:00 Íslandsmeistaramótið í koddaslag
Í annað sinn fer Íslandsmeistaramótið í koddaslag fram á bryggjunni á Eyrarbakka. Og nú verður spennan í hámarki – tekst meistaranum frá því í fyrra að verja titilinn eða fáum við nýjan meistara? Skráning hefst á staðnum kl. 13:45.
16:00 Simbakotstónar
Sigga Eva og strákarnir (kannski einhverjir fleiri) bjóða upp á tónleika í Simbakoti/Túngötu 28 á palli eða bílskúr eftir veðri. Allir velkomnir.
16:00 Kýló
Áfram halda menn að rifja upp gamla takta af Háeyrartúninu. Hugsanlega koma nýir kýlósnillingar fram!
17:00-18:30 Bakkastofa í Búðarhamri
Ásta Kristrún og Valgeir opna faðminn í Bakkastofu, sem er menningar- og fræðslusetur á Eyrarbakka, og kynna starfsemina sem þar fer fram. Kannski verður sungið um Stokks-Eyrarbakka – hver veit?
20:15-21:30 Raddbandakórinn í Húsinu
Heimir Guðmundsson, sem fæddur er í Húsinu árið 1944, leiðir fjöldasöng í stássstofunni og spilar á elsta píanóið á Suðurlandi. Skólasöngvarnir og fleiri kvæði dregin fram og hver syngur með sínu nefi.
22:00 Jónsmessubrenna
Jónsmessubrenna í fjörunni vestan við Eyrarbakkaþorp. Hlín Agnarsdóttir, hótelhaldari í Rein og nýbúi á Bakkanum, flytur stutt ávarp. Hið frábæra Bakkaband heldur svo uppi fjörinu meðan menn endast.
23:00-03:00 Jónsmessudansleikur í Hótel Bakka (gamla frystihúsið)
DJ GAYKAY þeytir plötum fram eftir nóttu og tilboð verða á barnum. Aldurstakmark er 18 ár.
Aðgangseyrir kr. 1.000 – miðasala við innganginn.
Tjaldsvæðið vestan þorpsins, sem Björgunarsveitin Björg rekur, hefur verið stækkað – ÖLL ÞÆGINDI OG NÓG PLÁSS.
Jónsmessuhátíðin er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg