Leyndardómar Suðurlands 26. mars – 6. apríl
Leyndardómar Suðurlands 26. mars – 6. apríl
Séropnun verður hjá Byggðasafninu í tilefni viðburðardaganna Leyndardómar Suðurlands. Húsið og Eggjaskúr verða opin alla viðburðadagana frá 12 – 17. Báðar helgarnar verður hægt að slá tvær flugur í einu höggi fyrir 1000 krónur, koma í safnið og rölta svo yfir kirkjutorgið og fá sér kaffi og köku í veitinga- og kaffihúsinu Rauða húsinu. Beitningaskúrinn sem er staðsettur í miðju þorpi niður við sjó verður opinn báðar helgar frá 12-17 og frír aðgangur.
Hópsöngur verður í Húsinu 5. apríl kl. 20.00 við undirleik Örlygs Benediktssonar, frír aðgangur. Sama kvöld opnar Rauða húsið dyrnar á kránni í kjallaranum upp á gátt og þar er hægt að svala þorstanum fram eftir kvöldi.
Frítt verður í safnið á virkum dögum á Leyndardómum Suðurlands.