Menningin í október
Menningin í október
Skólastofa, listasmiðja, ratleikur, litafjör, tónleikar og sjóskrímslasögur eru á dagskrá safnsins í tilefni af Menningarmánuðinum október. Auk þess verður gestum boðið að heimsækja varðveisluhús safnsins á Búðarstíg 22 og fá leiðsögn sunnudaginn 23. október. Safnið sjálft verður opið alla sunnudaga kl. 13 -17 og enginn aðgangseyrir. Fjölskyldufólk er sérlega velkomið og alltaf heitt á könnunni. Fyrstu helgina í október kvaddi safnið yfirgripsmiklu listasýninguna Hafsjó – Oceanus með teboði og listasmiðju en á döfinni eru þessir viðburðir:
Sunnudagur 9. okt.
Ratleikur
kl. 13 – 17
Sunnudagur 16. okt.
Sísí segir sss – sss segir Sísí
kl. 13 – 17
Skólasmiðja verður sett upp í borðstofu Hússins þar sem Gagn og gaman, glamrandi ritvél, suðandi myndvarpar og gömul landakort eru meðal gersema. Skólafjör fyrir unga og gamla.
Listasmiðja með Davíð Art
kl. 14 – 16
Sólrún Bragadóttir – Íslensk sönglög í tónaflæði
kl. 17 – 18
Í stásstofu Hússins mun Sólrún Bragadóttir óperusöngkona syngja íslenskar melódíur í spunaflæði án orða. Sólrún stillir sig inn á andrúmsloftið hverju sinni og syngur gangandi á milli fólks.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
Sunnudagur 23. okt.
Sísí segir sss – sss segir Sísí
kl.13 – 17
Skólasmiðja verður sett upp í borðstofu Hússins þar sem Gagn og gaman, glamrandi ritvél, suðandi myndvarpar og gömul landakort eru meðal gersema. Skólafjör fyrir unga og gamla.
Varðveisluhús Byggðasafns Árnesinga á Búðarstíg 22 á Eyrarbakka
kl. 14 – 17
Opið hús verður í varðveisluhúsi safnsins. Leiðsagnir verða um rýmin og í sviðsljósinu verður gamli skólaskápur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fullur af verðmætum.
Sunnudagur 30. okt.
Sísí segir sss – sss segir Sísí
kl. 13 – 17
Skólasmiðja verður sett upp í borðstofu Hússins þar sem Gagn og gaman, glamrandi ritvél, suðandi myndvarpar og gömul landakort eru meðal gersema. Skólafjör fyrir unga og gamla.
Skrímslasögur í Beitingaskúrnum
kl. 18 – 19
Skrímslasögur fyrir börn verða lesnar í Beitningaskúrnum í dularfullt andrúm skammdegis. Kakó verður í boði fyrir kalda gesti.