Gamlir kjörkassar á safnið
Gamlir kjörkassar á safnið
Í gær var Byggðasafni Árnesinga færðir þrír gamlir kjörkassar til varðveislu og er meðfylgjandi ljósmynd tekin við það tækifæri fyrir framan Húsið á Eyrarbakka.
Á ljósmyndinni er safnstjórinn Lýður Pálsson ásamt Yfirkjörstjórn Árborgar þeim Boga Karlssyni, Steinunni Fjólu Sigurðardóttur og Ingimundi Sigurmundssyni formanni þegar kjörkassarnir voru afhentir. Kassarnir koma úr þremur aflögðum sveitarfélögum.