Söngstund í stássstofunni
Söngstund í stássstofunni

– Söngstund sunnudaginn 26. júlí kl. 16
Verið hjartanlega velkomin á notalega söngstund í Húsinu á Eyrarbakka!
Systurnar Agnes Ásta og Jóhanna Naomí Ragnarsdætur syngja ásamt söngkennara sínum Eyjólfi Eyjólfssyni og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Það verður létt stemning, falleg tónlist, gaman og fjör – tilvalið tækifæri til að njóta góðrar samveru í hlýlegri stássstofunni.
Við hlökkum til að sjá ykkur!








