Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 26. og 27. júní 2026

Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 26. og 27. júní 2026

24/06/2026

Jónsmessa 2026

Á hverju ári er sett saman fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa. Helstu viðburðir eru við kirkjutorg en bæjarhátíðin teygir sig um allan Eyrarbakka meðan á hátíðinni stendur.

ALLIR ERU  VELKOMNIR Á JÓNSMESSUHÁTÍÐ Á EYRARBAKKA!!!

 

FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ

13-17:00 Hafdís Brands Verður með opið alla helgina, Túngötu 2

16:45 JÓNSMESSUBOLTI UMFE – KÍLÓ
Mæting við Garðstún bakvið Húsið – Skráning á staðnum. Áhorfendur hvattir til að mæta og hvetja sitt lið áfram. Pylsur og drykkir í boði að lokinni keppni.

19:00 Fjölskyldubingó – Samkomuhúsið Staður – Húsið opnar 18:30

20:00 Bifreiðaklúbbur Suðurlands | Keyra í gegnum þorpið,flauta og stoppa á planinu hjá sjoppunni (ef veður leyfir)

22:00 Rauða Húsið – Kahoot, húsið opnar kl 21 og Kahoot byrjar kl 22:00

LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ

9:30    Morgunmatur í Hallskoti – Skógræktarfélag Eyrarbakka býður í morgunmat

12:00 SETNING JÓNSMESSU 2024 – Sjóminjasafnið, Túngata 59

  • Brúðubíllinn með sýningu fyrir yngri kynslóðina

12:00 Jónsmessukaffihús í kjallaranum á Rauða – Cakes by Ana

12:30 Rauða Húsið – Hamborgaragrilltjald á planinu ef veður leyfir og opið þangað til hamborgarnir klárast

13:00 – 15:00 HÁTÍÐARHÖLD VIÐ GARÐSTÚN

  • Skapandi sumarstörf í Árborg – ungmenni úr Árborg
  • Frí andlitsmálun
  • Hestar frá Jessicu frá Bakkahestum sem krakkar geta tekið hring á
  • Slökkviliðsbíll kemur og kíkir á okkur og möguleiki á sjúkrabíl og lögreglubíl
  • Karamellukast á Garðstúni
  • Félagar úr Þjóðbúningafélagi Íslands í búningum í og við Húsið frá 13-17
  • Skátaland verður með klifurvegg og ofurþrautabraut

SLÖKKVIBÍLLINN OG FERGUSONINN hans Óla í Mundakoti verða á ferðinni um þorpið

13:00 Fangaverk frá Litla Hrauni – Verða með markað í kofa á Kirkjutorgi

13:00 Verslunin Bakkinn – útibú í kofa á Kirkjutorgi

13:30 KJÖTSÚPA í boði Rauða hússins – frí ef mætt er með ílát á meðan birgðir endast

14:00 – 17:00 OPIN HÚS

  • Ásdís og Guðmundur bjóða heim á pallinn, súpa og spjall. Háeyravellir 6 kl 15-17
  • Arnfríður, Björg og Hafdís Harðardóttir bjóða á leir- og handverksmarkað á vinnustofunni og pallinum, Nýjabæ, Eyrargötu 8b
  • Gamla Kartöflugeymslan – Verða með heitt á könnunni. „Bátar og minningar – Ljósmyndaflæði frá Bryggjunni “
  • Jónína Óskarsdóttir tekur á móti gestum á Eyri, Eyrargötu 39a
  • Dario – Garðsala í Brennu 1, gengið inn frá Túngötu
  • Álfrún og Kjartan – Bílskúrssala Þykkvaflöt 5B
  • Þóra Ósk og Birgitta – Garðsala Búðarstíg 20

19:30 SAMSÖNGUR Í HÚSINU
Við syngjum saman úr skólaljóðunum og Heimir Guðmundsson leikur undir á eitt elsta píanó á Suðurlandi

21:00 JÓNSMESSUBRENNA Í FJÖRUNNI – Brennustjórar og eldgleypar Andri Geir og Jón.
Trúbadorinn Gunnar Geir heldur uppi fjörinu. Hera Fjord verður með hátíðarræðuna

22:30 RAUÐA HÚSIР– Jónsmessuball á efstu hæð. Hljómsveitin Moskvít og
Grétar Lárus Matthíasson halda uppi stuði. Opið fram á rauða nótt og stemming eftir því!
Aldurstakmark 20 ára, miðaverð 2.500 kr.

Verslunin Bakkinn – opið kl. 10 – 19 á laugardeginum og Jónsmessu tilboð alla helgina
Byggðasafn Árnesinga – söfnin opin frá kl. 10 – 17 frítt aðgengi. Tvær nýjar sýningar: Yfir beljandi fljót í borðstofu og Bjargvætturinn í Kirkjubæ.
Sjóminjasafnið – safnið opið frá kl. 11 – 17 frítt aðgengi. Sýningin Bátar og býli í forsal safnsins. 
Rauða Húsið – opið um helgina kl. 12 – 21
Frítt að veiða í Ölfusárósi fyrir landi Eyrarbakka dagana 26. – 28. júní 2026