Haustsýning – 70 sögur á safni 

sep 11, 2023

70 sögur á safni er titill haustsýningar Byggðasafns Árnesinga sem verður opnuð föstudaginn 15. september kl. 18 í Húsinu á Eyrarbakka. Á sýningunni er lögð áhersla á að draga fram forvitnilega hluti með persónulega tengingu úr daglegu lífi fólks á 19. og 20. öld. Margir einstakir gripir eru á sýningunni líkt og þjóðbúningur sem Þórdís Símonardóttir ljósmóðir saumaði á eldri systur sína Ólöfu og líkan Sigurfinns Sigurðssonar af æskuheimili sínu Birtingarholti. Einnig má sjá ýmislegt fágæti eins og stólinn hennar Lofthænu, barnasnuð úr beini og  hrútsspeldi úr Þingvallasveit. Sögurnar á bak við gripina eru mismiklar og stundum nær horfnar. Borðstofan verður sneisafull af fróðleik og söguferðin kvíslast um allt safnið.

Byggðasafn Árnesinga varðveitir um 8.000 gripi héraðsins en sögurnar eru enn fleiri. Safnið fagnar 70 ára afmæli í ár og það er því engin tilviljun að valið var að segja 70 sögur á haustsýningunni.    

Safnið er opið daglega fram í septemberlok kl. 10 – 17 og fyrstu sýningarhelgina 16. og 17. september verður frír aðgangur. Í október verður opið kl. 13-17 um helgar. Hópar og skólar eftir samkomulagi. Verið öll velkomin.

Líkan af Birtingarholti, Hrunamannahreppi. Sigurfinnur Sigurðsson (1931-2021) gerði líkan af íbúðarhúsinu í Birtingarholti. Ágúst Helgason bændafrömuður í Birtingarholti byggði húsið árið 1896 en húsið brann að honum látnum árið 1951. Hjónin Ágúst og Móeiður Skúladóttir bjuggu í Birtingarholti 1892-1938. Sigurfinnur var barnabarn þeirra. Sigurfinnur Sigurðsson fæddist 11. des. 1931 í Birtingaholti. Hann ólst upp í gamla bænum utan þeirra 3ja ára sem hann þurfti að dvelja í spítala vegna berkla sem hann fékk ungur að árum. Þegar hann var rúmlega áttræður fæddist hjá honum löngun til að gera líkan af gamla bænum sem og hann gerði. Þá voru ekki margir eftirlifendur sem mundu eftir bænum og leitaði hann heimilda eins og hann gat en að öðru leiti þurfti hann að byggja á minni sínu. Líkanið er á sýningunni 70 sögur á safni.