Bjargvætturinn – sýning um giftusamlega björgun úr Ölfusá

Bjargvætturinn – sýning um giftusamlega björgun úr Ölfusá

18/03/2026

Sýningin Bjargvætturinn opnar í safninu laugardaginn 28. mars kl. 14.

Þar segir frá dramatískri björgun Jóns Ingibergs Guðmundssonar (1923–2001) þann 6. september 1944, þegar tveir vörubílar frá Kaupfélagi Árnesinga fóru fram af Ölfusárbrú. Brúin brast undan þunganum, bílarnir féllu í ána og Jón slapp naumlega lifandi. Hann náði taki á varadekki sem flaut með honum niður ána og það varð honum til lífsbjargar. Dekkið, bjargvætturinn sjálfur, hefur varðveist og er aðalsýningargripurinn. Atburðurinn markaði djúp spor í samgöngusögu svæðisins og hefur varðveist í munnmælum og minjum.

Sýningin er í Kirkjubæ og hægt að sjá hana yfir páska og áfram í sumar.

Safnið verður opið um og fyrir páska frá 28. mars fram til 6. apríl kl. 13–17. Engin aðgangseyrir er á safnið á opnunardag sýningarinnar. Verið velkomin!