Höfðingleg gjöf til Byggðasafns Árnesinga – fornbíllinn ÁR-67
Höfðingleg gjöf til Byggðasafns Árnesinga – fornbíllinn ÁR-67

Fornbíllinn ÁR-67 var afhentur Byggðasafni Árnesinga til varðveislu laugardaginn 22. júní sl. á Jónsmessuhátíð Eyrarbakka. Bíllinn sem er oftast nefndur„Gistihússbíllinn“ eða „Gunnarshússbíllinn“ er Ford B módel árgerð 1930, vörubíll með farþegaboddíi.
Hann var upphaflega í eigu bræðranna Kristins, Gunnars og Guðmundar Gunnarssona í Gunnarshúsi, sem einnig var nefnt Gistihúsið á Eyrarbakka. Guðmundur var skráður fyrir bílnum en Gunnar keyrði hann alla tíð. Bifreiðin var notuð við margskonar verkefni eins og malarflutninga við vegagerð, vöruflutninga og farþegaflutninga. Strax árið 1930 var smíðað farþegaboddí fyrir 12 farþega á bílinn. Á bílnum var farið á Alþingishátíðina á Þingvöllum árið 1930 með fullfermi af Eyrbekkingum. Á árum heimstyrjaldarinnar síðari var hann í farþegaflutningum milli Eyrarbakka og Kaldaðarness en margir Eyrbekkingar voru í vinnu hjá breska hernum. Bíllinn var þá einnig notaður í malarflutningum við flugvallargerð í Kaldaðarnesi. Árið 1975 keyptu Erlingur Ævarr Jónsson útgerðarmaður og Guðbjörn Frímannsson mjólkurbílstjóri bílinn sem þá var illa farinn eftir langa notkun. Hann var gerður upp af Guðbirni og fór uppgerður á götuna árið 1978.
Gefendur bílsins eru Sigríður Dagný Ólafsdóttir ekkja Erlings Ævarrs og börn Guðbjörns þau Sigurður Óli og María.
Bíllinn verður varðveittur í Búðarstíg 22, varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga. Honum verður ekið á sýningar þegar þess er óskað og jafnframt má búast við að á tyllidögum á Eyrarbakka verði honum ekið um götur þorpsins.
Meðfylgjandi eru myndir frá afhendingunni en Lýður Pálsson safnstjóri tók við lyklum bílsins úr hendi Sigurðar Óla Guðbjörnssonar að viðstöddum Maríu systur Sigurðar Óla og ekkju Erlings Ævarrs, Sigríði Dagnýju Ólafsdóttur. Sigurður E. Steinsson, dóttursonur Guðbjörns, flutti ávarp fyrir hönd gefenda og Lýður Pálsson safnstjóri þakkaði fyrir gjöfina með stuttri tölu.
Byggðasafn Árnesinga þakkar höfðinglega gjöf.