Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka 2025
Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka 2025

Árleg Jónsmessuhátíð Eyrarbakka verður haldin 20. til 21. júní. Margt verður í boði fyrir alla fjölskylduna og allir velkomnir. Byggðasafn Árnesinga tekur þátt í hátíðinni með opnun sýningar á föstudagskvöldi, glímusýning verður í garðinum fyrir framan Húsið, félagar úr Þjóðbúningafélagi Íslands verða í sínum flottu búningum í og við Húsið, safnið býður upp á samsöng í stássstofu Hússins á Eyrarbakka um kvöldið. Einnig verður söguleg bifreið afhent safninu um hádegi á laugardag. Í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands ljúkum við upp dyrum að Eyri þar sem Jónína Óskarsdóttir mun taka á móti gestum.
Margt annað er í boði á Eyrarbakka en hér er dagskráin: