Gullspor – greiningardagur

Gullspor – greiningardagur

26/09/2024
Er allt gull sem glóir? Sunnudaginn 6. október býðst fólki að koma með gull- og silfurgripi úr einkaeigu til Byggðasafns Árnesinga þar sem sérfræðingar rýna í djásnin. Greiningardagurinn verður haldinn kl. 14- 16 í sal Varðveisluhúss byggðasafnsins á Búðarstíg 22 á Eyrarbakka. Þessi opni viðburður er sniðinn að fyrirmynd greiningardaga á Þjóðminjasafni Íslands sem hafa um árabil notið vinsælda.
Þeir sérfræðingar sem taka á móti fólki þennan dag verða:
Halla Bogadóttir, gullsmiður
Lilja Árnadóttir, fyrrum sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands
Bogi Karlsson, úrsmiður
Ásgeir Reynisson, gullsmiður
Birgir D. Ingibergsson, gullsmíðanemi
Greiningardagurinn er hluti af menningardagskránni Gullspor og sýning undir því nafni er í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka á Túngötu 59. Sýningin fjallar um handverk gull- og silfursmiða úr Árnessýslu. Frír aðgangur er á þá sýningu eins og á safnið allt í tilefni Menningarmánaðarins október í Árborg. Hvatinn að Gullsporum kemur frá félagsmönnum Félags íslenskra gullsmiða sem fagna nú 100 ára afmæli og nýtur safnið góðs af samstarfi við félagið.
Safnasjóður styrkir verkefnið.