Yfir beljandi fljót – sýningaropnun
Yfir beljandi fljót – sýningaropnun

Sýningin „Yfir beljandi fljót“ opnar föstudaginn 20. júní kl. 18 í Húsinu á Eyrarbakka.
Sýning fjallar um sögu fólks sem ferðaðist gangandi og ríðandi á tímum þegar ár og vötn klufu sveitir Árnessýslu.
Farið var um rótgrónar þjóðleiðir og árnar voru farnar á vöðum eða í ferjum. Rétt fyrir aldamótin 1900 voru stærstu árnar Ölfusá og Þjórsá brúaðar, bylting sem kollvarpaði samgönguháttum. Eftir lifa ótrúlegar sögur af langferðum fólks sem barðist við oft óblíða náttúru og krefjandi aðstæður.
Á sýningunni eru safnmunir, ljósmyndir og fjölbreyttar frásagnir af ferðalögum almennings áður en ár voru brúaðar og vegir lagðir.
Við sýningaropnunina verður boðið upp á léttar veitingar. Styrktaraðili sýningarinnar er Safnaráð. Verið öll velkomin!