
Bátar og býli
Sýningin Bátar og býli er opnuð föstudaginn 19. júní 2026 kl. 18.00 í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka.
Á sýningunni eru fagurlega smíðuð líkön af bátum og skipum ásamt áhugaverðum líkönum af byggingum úr Árnessýslu. Þar má sjá þrjú skipslíkön eftir hinn þekkta skipasmið Stein Guðmundsson í Steinsbæ á Eyrarbakka, líkan af bátnum Von frá Þorlákshöfn eftir Vilhjálm Hinrik Ívarsson og fleiri báta eftir minna þekkta hagleiksmenn.
Fjölbreytt húsalíkön eru á sýningunni eins og stórt líkan af Stöng í Þjórsárdal smíðað af Magnúsi Pálssyni, listamanni, smágert líkan af Áslækjarjómabúi í Hrunamannahreppi eftir Ingimund Einarsson og einstak líkan af Birtingaholti gert af Sigurfinni Sigurðssyni löngu eftir að sjálfur bærinn brann árið 1951.
Sýningin er lítil glufa inn í heim módelsmíða þar sem handverk hagleiksfólks og fagmanna kemur saman og birtir okkur smækkaða mynd af manngerðri veröld.
Meðfylgjandi ljósmynd er tekin um miðja síðustu öld af leikfélögunum á Eyrarbakka þeim Brynjólfi G. Brynjólfssyni á Litlu-Háeyri og Jóni Hjartarsyni í Káragerði með líkan sitt af trillu.
Sýningin er í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og er opin á opnunartíma safnsins. Hún stendur til haustsins 2027.








