Eyri opið sunnudaga í sumar

Eyri opið sunnudaga í sumar

28/06/2025

 

Sunnudaginn 29. júní kl. 14-17 verður húsið Eyri (Eyrargata 39A) opið gestum. Jónína Óskarsdóttir verður á Eyri og segir sögu hússins og fyrri íbúa. Hún verður einnig alla sunnudaga í júlí á sama tíma. Ókeypis er fyrir alla þá sem framvísa ársmiðum Byggðasafns Árnesinga en annars er aðgöngueyrir 1000 kr. Einnig er ókeypis fyrir börn 17 ára og yngri og öryrkja.

Eyri var byggt árið 1907 af Sigurði Gíslasyni smið á Eyrarbakka sem bjó í húsinu til 1910 en seldi það þá hjónunum Guðfinni Þórarinssyni formanni frá Nýjabæ á Eyrarbakka og Rannveigu Jónsdóttur húsfreyju og verkakonu frá Litlu Háeyri á Eyrarbakka. Guðfinnur fórst með bát sínum Sæfara ÁR-69 ásamt sjö manna áhöfn í innsiglingunni á Eyrarbakka 5. apríl 1927. Rannveig bjó áfram á Eyri til dauðadags 8. september 1965. Börn þeirra, Hanna og Óskar, eignuðust þá húsið sem þá varð að sumarbústað. Síðar komst húsið í eigu barna Óskars og Hallveigar Ólafsdóttur sem seldu Ríkissjóði húsið árið 2020 og er það nú í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.  Þjóðminjasafn Íslands hefur falið Byggðasafni Árnesinga að halda Eyri opnu og hafa umsjón með Eyri í sumar.
Frá því að Rannveig Jónsdóttir féll frá 1965 gættu afkomendur hennar og Guðfinns þess að viðhalda minningu þeirra með því að halda húsinu vel við og breyta í engu innri gerð þess né húsbúnaði. Húsið er óvenjulega vel varðveitt að innan, í mörgu upprunalegt og í því er upprunalegur húsbúnaður að hluta til. Húsið er í góðu ástandi en fyrir sjö árum var skipt um bárujárn og flesta glugga en glugginn á vesturgafli er þó upprunalegur frá 1907.

Eyri er mikilvægur hluti götumyndar Eyrargötu og stendur meðal húsa frá því í byrjun 20. aldar. Ekkert annað timburhús af alþýðugerð er í húsasafni Þjóðminjasafnsins.