by Lydur Palsson | Sep 26, 2017 | News, Fyrirlestur, Hátíðar, Sýningar, Tilkynning
Sumarsýningin „Kjóllinn“ í Húsinu er að renna sitt skeið og við kveðjum kjólana með viðhöfn. Þessa síðustu sýningarhelgi mun skrjáfa í pilsum, stofurnar fyllast af söng og skvaldri og auðvitað verða kjólar út um allt. Laugardagskvöldið 30. september mætir...
by Lydur Palsson | Sep 7, 2017 | News
Fjögur pör hafa látið gefa sig saman í stássstofu Hússins á Eyrarbakka á síðustu mánuðum. Umhverfi stofunnar hentar vel til brúðkaupa en þessi áhugi á að nýta stofuna í þessum góða tilgangi hefur komið starfsmönnum safnsins skemmtilega á óvart. Þann 29. desember 2016...
by Lydur Palsson | Jul 1, 2017 | News, Tilkynning
Rjómabúið á Baugsstöðum austan Stokkseyrar verður opið laugardaga og sunnudaga í júlí og ágúst frá kl. 13 til 18. Rjómabúið hóf starfsemi sína 1905 og starfaði nær óslitið til 1952. Þangað komu bændur úr nágrenninu með rjóma sem hraustar rjómabússtýrur unnu úr smjör...
by Lydur Palsson | Jun 20, 2017 | News, Hátíðar, Sýningar, Tilkynning
Að venju verður haldin Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka þegar sólin er sem hæst á lofti laugardaginn 24. júní 2017. Dagskráin er fjölbreytt og meðal atburða í söfnunum er Kjólakaffi að hætti Auðbjargar Guðmundsdóttur í Húsinu um morguninn og almennur söngur undir stjórn...
by Lydur Palsson | May 30, 2017 | News, Fyrirlestur, Sýningar, Tilkynning
Sumarsýning Kjóllinn opnar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka annan í hvítasunnu mánudaginn 5. júní. Á sýningunni má sjá litríka kjóla úr safneign í samspili við kjóla frá safngestum og er öllum frjálst og velkomið að lána kjólinn sinn á sýninguna. Kjóllinn má vera...
by Lydur Palsson | May 16, 2017 | News, Fundar, Fyrirlestur, Sýningar, Tilkynning
Í tilefni af Íslenska safnadeginum fimmtudaginn 18. maí býður safnið gestum uppá hádegisleiðsögn. Síðdegis verður Beitningaskúrinn opinn þar sem sýnd verða handbrögðin við beitingu. Hádegisleiðsögnin verður í Húsinu í umsjón Þorsteins Tryggva Mássonar...