
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 26.-27. júní 2026
Árleg Jónsmessuhátíð Eyrarbakka verður haldin 26.-27. júní. Margt verður í boði fyrir alla fjölskylduna og allir velkomnir. Byggðasafn Árnesinga tekur þátt í hátíðinni með ýmsum hætti, félagar úr Þjóðbúningafélagi Íslands verða í sínum flottu búningum í og við Húsið, safnið býður upp á samsöng í stássstofu Hússins á Eyrarbakka um kvöldið. Bifreiðar og traktór safnsins verða á ferðinni. Í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands ljúkum við upp dyrum að Eyri þar sem Jónína Óskarsdóttir mun taka á móti gestum.
Margt annað er í boði á Eyrarbakka en hér er dagskráin með fyrirvara um villur og breytingar:









